RECARO Specialist M er sá allra vinsælasti klassíski sportstóllinn sem er alhliða stóll hvort sem er í 4×4 eða önnur farartæki, hefur einstaka stuðningseiginleika og er hvorki of né van. Frábær hönnun sem hefur staðist tímanns tönn, þar fara saman gæði og verð. Hægt er að fá Specialist með 3 gerðum af setum M – W- og S. Hægt er að lengja seturnar af M og W gerð. Einnig hægt er að setja armpúða á bakið. Bakinu er hægt að halla stíglaust og fella fram og auka mjóbaksstuðning. Gert er ráð fyrir sleðum til að setja undir stólinn eða sérstökum millistykkjum fyrir ákveðnar bílategundir. Specialist M er venjulega lagervara í Dinamica Alcantara og Ambla black áklæði.
Hægt er að setja hita í bak og setu eftirá eða sérpanta.