Webasto Range+ miðstöð 4kw Air Top 4,0 12v diesel sett sem er sér hannað fyrir Ford E-Transit, hitar bæði flutningsrými og ökumanns hús. Með því að nota Webasto miðstöðina sparast verulegt rafmagn sem getur aukið drægni bílsins um allt að 80km.
Settið inniheldur alla hluti til ísetningar ásamt 12L tank sem er settur undir bílinn með áfyllingar stút sem er staðsettur undir húddinu.
Hægt að tengja mismunandi stýringar við t.d. fjartstýringu, GSM App eða klukku.
sjá tæknilýsingu